03. febrúar 2009 klukkan 08:20
Ég fékk loksins vottorð frá lækninum mínum að ég væri orðinn vinnufær en eftir þessu er ég búinn að bíða í marga mánuði en eins og þið vitið þá hefur endalaust veriða ð bætast á mig aðgerðir en loksins sér maður fyrir endann á þessu ferli sem hefur staðið nú rétt rúm 2 ár eða frá 12 janúar 2007.
Nú er ekkert annað að gera en að koma sér í þrusu form eða allavega stefna á það svo maður hafi eitthvað markmið en maður er löngu búinn að átta sig á því að ef ekkert markmið er haft þá gengur manni mikið hægar í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur.
Annars er allt gott að frétta af fjölskyldunni en nú er sá minnsti orðinn 3 mánaða en maður er ekki að skilja hvað tíminn líður svakalega hratt eða svona miðað við að maður sjálfur er enn 25ára í anda:)
Jæja þar til næst sá yngsti kallar.......
Gunnar Fannberg Gunnarsson
11. október 2008 klukkan 09:41
Nú er litli eða stóri prinsinn okkar fæddur en hann kom í heiminn 4550gr og 53cm engin smá smíði. fæðingin gekk alveg ótrúlega vel en samkvæmt skýrslunni tók þetta ekki nema 2 tíma og 15 mínútur alveg frábært.
Það var ótrúleg tilviljun á fæðingadeildinni að við vorum á herbergi nr. 4 en æsku vinkona konunnar var á herbergi 3 en þær áttu á sama degi, við kl. 23.09 og Árný kl. 23.57.
Þetta er ótrúlega skritið að vera kominn heimmeð einn svona lítinn en ég verð að viðurkenna að ég bara kann varla að skipta á svona litlu barni en þetta kemur allt saman, verra er að ég er fastur á hækjum þannig að ég get ekki hjálpað frúnni eins mikið og ég hefði viljað en er bara duglegri með eldri strákana.
Vildi bara benda þeim á það sem eru duglegir að spyrja hvers vegna ég búi bara til stráka þá er það einfalt en þegar maður er búinn að finna fullkomna uppskift þá er maður ekkert að breyta því;)
Farinn að sinna börnunum sendi nokkrar línur þegar tími gefst;)
Gunnar Fannberg Gunnarsson
11. september 2008 klukkan 21:12
Loksins er þetta afstaðið og vona ég svo innilega að þetta hafi verið síðasta aðgerðin sem ég þarf að fara í.
Lagt var upp með að þetta tæki 2 tíma en þetta endaði í 4 1/2 tíma og missti ég aðeins 3 1/2 lítra af blóði á meðan þessum átökum stóð en ég fékk frekar mikið sjokk þegar ég vaknaði á vöknun og leit á klukkuna en hún var orðinn 22.15 að kvöldi til en ég fór í aðgerð klukkan 10 um morguninn, frekar langur tími.
Ég ætla nú ekkert að vera að kvarta yfir þessu þar sem þetta tókst á endanum og ég kominn heim í faðm fjöskyldunnar.
Nú er bara að taka það rólega og láta legginn gróa svo ég verði örugglega vinnufær 1 November þar sem ég er búinn að ráða mig til VST frá þeim tíma og hlakkar mig mikið til að byrja að vinna þannig að dagurinn verði nú í föstum skorðum en það er nú ekki það eina heldur á erfinginn a mæta 12 október og þá er nú betra að geta stígið í báða fætur;) nóg að gera á stóru heimili.
Gunnar Fannberg Gunnarsson
04. september 2008 klukkan 22:29
Nú er loksins komið að því, síðasta aðgerð næsta mánudag en ég fer í innllögn í fyrramálið til að hitta alla læknana og láta draga úr mér slatta af blóði.
Nú á að losa mig við járnið sem er inní lærleggnum en ekki er það svo gott að það sé það eina því hann Brynjólfur ætlar að taka stóra borinn sinn og bora innan úr beininu til að koma stærra jarni fyrir því lærið er víst að detta í sundur vegna þess að það nær ekki að gróa almennlega.
Ég skrifa nokkrar línur þegar ég kem af spítalanum og segi ykkur betur frá þessu.
bæjó...........
Gunnar Fannberg Gunnarsson
12. maí 2008 klukkan 22:06
Nú er komið að því að krukka aðeins í axlirnar en hægri öxlin verður skorin á morgun en svo aftur á fimmtudaginn næstu fáum við afhenta íbúðina þannig að ég verð víst að níðast á öllum sem ég þekki til að aðstoða við flutninginn en við gerum þetta reynar hægt og rólega þar sem við ætlum ekki að flytja alveg í bæinn fyrr en 1 júlí en þá er frúin búin í skólanum.
Það skemmtilega sem er að frétta þessa dagana er að ég og Þór Bróðir fórum saman að vitja um minka gildruna sem sett var niður í ágúst á síðasta ári en við vorum ekkert sérlega bjartsýnir á að eitthvað væri í gildrunni en þegar þór lyfti gildrunni kom þessi hrikalega stóri minkur upp á móti honum en honum brá svo svakalega að ekki munaði miklu að hann færi á rasskatið ofan í ána en ekki var mikil hætta á ferð þar sem þessi minkur var greinilega búinn að vera dauður í þó nokkrar vikur.
þar til síðar......
Gunnar Fannberg Gunnarsson
30. apríl 2008 klukkan 23:21
Ég var nú ekkert lítið búinn að tala um og hlakka til að klára síðustu aðgerðina en í dag fékk ég miður slæmt símtal en ég þarf víst að fara í 2 aðgerðir til viðbótar, báðar axlir fyrst hægri öxl þann 13 næstkomandi en svo strax sú vinstri þegar ég verð aðeins farinn að jafni mig.
En það góða í þessu öllu saman er það að við erum búin að kaupa okkur íbúð í Tröllakór og fáum afhent þann 15 næstkomandi semsagt eftir 2 vikur en við komum ekki í bæinn fyrr en í júlí, þetta er gott á þann veg að við getum tekið okkur tíma í að flytja.
Enn stækkar fjölskyldan en Fríða er ólett;) ótrúlegt hvað okkur gengur vel að búa til börn
eins og einhver sagði þá er maður bara rét að byrja
þar til síðar........
Gunnar Fannberg Gunnarsson
20. mars 2008 klukkan 17:35
Þá er síðasta aðgerðin afstaðin og gekk þetta bara vel að ég held en ég var náttúrulega sofandi þegar þetta var gert, skurðurinn er ca. 30cm langur nær frá mjöðm og langt niður að hné myndi setja inn mynd af þessu nema hvað þetta er ekki alveg fyrir hvern sem er að sjá svona heftað saman.
Nú er bara að koma sér á báðar fætur og ná heilsu en ég reikna með að vera á hækjum í ca. 6 vikur.
Það sem gert var er frekar einfalt lærið opnað skorið af beininu sem stóð út í vöðvann og síðan var tekin járnabindangavír og beinið dregið saman eins og hægt var og beina mulning troðið á milli svo þetta myndi nú gróa allt saman.
Gunnar Fannberg Gunnarsson
12. mars 2008 klukkan 11:23
Sælt veri fólkið í síðustu viku átti ég að fara í síðustu aðgerðina en þegar ég var búinn að hitta hjúkkuna, svæfingalækni, aðstoða læknirinn og búið var að reyna að ná blóði úr báðum handleggjum á mér þá var með tilkynnt að fresta þurfti aðgerðinni í viku

.
Nú sit ég hér og bíð eftir símtali frá B5 en það er deildin sem ég á að leggjast inná í fyrramálið, við skulum vona að hjúkkan með nálina nái nú að hitta á æðina í fyrstu tilraun svo ég verði nú ekki eins og nálapúði eftir misheppnaðar tilraunir.
Nú lítur út fyrir að ég verði orðinn vinnufær eftir ca. 2-3 mánuði fer eftir hvað gengur vel á morgun en mér er mikið farið að hlakka til að byrja að vinna aftur enda orðinn frekar riðgaður í autocat en það ætti að vera fljótt að rifjast upp ef ég hef heilsu í að sitja við tölvuna og teikna eitthvað af viti.
Við félagarnir sóttum allir um hreindýr nú í ár en ég var sá eini sem fékk dýr í þetta skiptið enda lítur allt út fyrir að þeir þurfi að koma með til að drösla dýrinu tilbaka, NÚ ER BARA AÐ VONA AÐ ÉG HITTI en það er nú ekkert sjálfsagt þó maður sé með stóran riffil og góðan kíki en nú er bara að fara að æfa sig.
Það er allt gott að frétta hér í sveitinni snjóinn er fainn að taka upp og vor í lofti enda er öllum farið a hlakka til að byrja að grilla í garðinum þegar veður leifir.
Hringir síminn ætli það sé B5 skrifa aftur þegar mér verður sleppt út.
Skemmtilegt símtal........ aðgerðinni frestað fram yfir helgi enn og aftur
Gunnar Fannberg Gunnarsson
06. febrúar 2008 klukkan 23:15
Þá er búið að kviðskera mig og búa til nýja magavöðga

eða svo sagði læknirinn, aðgerðin gekk vel ég kom heim nú er bara að ná smá bata og skella mér í síðustu aðgerðina en þá ætti ég að geta byrjað að æfa ca. einhvern tímann í sumar, nokkuð nákvæmur tími það.
Ég þarf að liggja í rúminu núna út vikuna en ekki má ég hnerra, hósta, eða lyfta nokkrum hlut annars geta magavöðvarnir rifnað út úr saumnum en vonandi hefur snillingurinn saumað þetta bara tvöfaldan sikk sakk undir og yfir svo þetta haldi öllu sem halda þarf.
Það er eins og það sé farið að styttast í stórafmæli þega maður er að hugsa um að byrja að vinna aftur en þetta frí er orðiið nokkuð gott þó svo þetta sé veikindafrí þá hlakkar manni mikið til að byrja að gera eitthvað aftur.
Mikið hefur verið hugsað um tilvonandi húsið okkar sem við ætlum að byggja á þessu ári en helsta hugmynd um plan og útlit er komið í hausinn en þetta verður ekkert smá flott.
Jæja bvest að leggjast útaf aftur og sagna kröftum.
bæjó...........
Gunnar Fannberg Gunnarsson
16. janúar 2008 klukkan 14:54
Ég fór glaður í endurkomu eftir síðustu að gerð en ekki voru fréttirnar góðar, Það þarf að opna aftur á mér lærið og skafa af beininu og troða inná milli beinanna þar sem þetta hefur ekki góið sem skildi en þetta verður bara að hafa sinn gang.
Næsta aðgerð er 31 janúar en þá ætla snillingarnir að opna á mér kviðinn og sauma upp á mér þvottabréttið þetta var greinilega ekki nægilega vel saumaðu hjá þeim síðast fyrst þetta gaf sig, vonum bara að þeir vandi sig betur núna.
Héðan úr sveitinni er gott að frétta reyndar allt á kaf í snjó en ég á ekkert rosalega gott með gang í þessu færi en þá kemur jeppinn vel að notum.
skál í botn...........
Gunnar Fannberg Gunnarsson